Já, við hlustum og stöndum með Seyðfirðingum.
Hvernig við greiðum atkvæði hefur áhrif á hvort sjókvíaeldisfyrirtækin verða látin axla ábyrgð á starfsemi sinni eða hvort þau fá að halda áfram að spilla náttúru og lífríki Íslands og fara hræðilega með eldislaxana í kvíunum.
Undir greinina, sem birtist á Vísi, skrifa 143 Seyðfirðingar:
Á morgun göngum við til kosninga og nýtum lýðræðislegan rétt okkar til að kjósa þá flokka sem spegla hvað best gildi okkar og það samfélag sem við viljum byggja upp. Forsenda þess að lýðræði virki er að almenningur taki þátt í kosningum og velji fulltrúa sína. Þátttaka almennings í kosningum og í umræðu sem snýr að því sem stendur samfélögum næst, er forsenda fyrir trausti okkar á lýðræðið.
En til þess að rödd okkar heyrist, verður einhver að hlusta. Seyðfirðingar hafa hrópað hátt í baráttu sinni gegn sjókvíaeldi í firðinum. Við fylltumst baráttuhug þegar skoðanakönnun á vegum Múlaþings, sem Seyðisfjörður heyrir nú undir, sýndi ótvíræða andstöðu meirihluta íbúa fjarðarins (75%) gegn sjókvíaeldi. En þegar hvorki meirihluti Múlaþings né þingheimur hlustar, þá grefur undan trausti okkar á lýðræðið.
Vilji meirihluta heimamanna hefur verið skýr hvað varðar fyrirhugað sjókvíaeldi í firðinum. Við sögðum, segjum og munum segja, NEI TAKK! Við höfum sent inn sannreyndan undirskriftalista, við höfum gert athugasemdir við strandsvæðaskipulag og bent á ýmsa ágalla er snúa að innviðum samfélagsins og þjóðarinnar. Við höfum endurtekið ítrekað við hlutaðeigandi stofnanir ríkisins, mikilvægi þess að öryggi vegna ofanflóðahættu, siglinga og fjarskipta sé haft að leiðarljósi, -fremur en sérhagsmunir eins fyrirtækis.
Það er ískalt mat okkar að það sé alvarlegt að taka þá áhættu sem fylgir umræddu sjókvíaeldi. Siglingaleið inn fjörðinn, sem í dag telst örugg, myndi verða varhugaverð, sem er raunverulegt mat reyndra sjófarenda sem hafa siglt langan og þröngan fjörðinn áratugum saman. Vistkerfið mun verða fyrir óafturkræfum áhrifum, bleikjustofninn í ám Seyðisfjarðar mun skaðast og eins og dæmin sýna, mun hætta á erfðablöndun við villta laxastofninn aukast verulega. Slíkar breytingar ógna líffræðilegum fjölbreytileika, ógn sem steðjar að allri jörðinni um þessar mundir og krefst hugrekkis að berjast gegn.
Atvinnutækifæri – já takk
Eins og aðrir landsmenn, vilja Seyðfirðingar aukin atvinnutækifæri til framtíðar í byggðarlagið sitt. Slík tækifæri verða að vera á forsendum náttúru og íbúa, svo þau snúist ekki upp í andhverfu sína. Það var mikið högg fyrir samfélagið þegar fiskvinnslan lokaði fyrr á árinu og rúmlega 30 störf hurfu úr bænum. Í samfélagi, þar sem hvert einasta starf skiptir máli, er mikilvægt að taka ekki afdrifaríkar ákvarðanir á röngum forsendum.Ný atvinnutækifæri þurfa að vera sjálfbær og skapandi, byggja bæði á verkviti og hugviti og vera fjölbreytt og metnaðarfull. Þau þurfa að spretta af áhuga og reynslu íbúa og vera á forsendum samfélagsins til framtíðar. Efla þarf nýsköpun og styðja við það frumkvæði sem fyrir er. Það er mikilvægt að fækka ekki opinberum störfum heldur bæta við og fjölga störfum án staðsetningar og auka hvata fyrirtækja til að flytja störf á landsbyggðina.
Sérkenni Seyðisfjarðar
Með siglingum Norrænu síðan 1975 er Seyðisfjörður í þeirri einstöku aðstöðu að vera næst stærsta gáttin inn í landið fyrir ferðamenn. Ferðaþjónustan reiðir sig því að miklu leyti á örugga siglingaleið inn fjörðinn. Bærinn hefur átt því láni að fagna að sjá ferðatímabilið lengjast og atvinnugreinina verða stöðugri. Verðmætasköpun ferðaþjónustuaðila og hafnarinnar hefur aukist mikið með auknum skipakomum á undanförnum árum. Í þessu liggja mikil verðmæti fyrir lítið bæjarfélag. Þó að margt hafi áunnist, leynast mikil tækifæri í að skapa enn fjölbreyttari störf og bæta upplifun ferðamanna og þar með íbúa.LungA hátíðin er sjálfsprottið og landsþekkt framtak skapandi Seyðfirðinga, sem fæddi síðar af sér LungA lýðskólann sem hefur starfað í rúman áratug og er enn í vexti. Nemendurnir glæða samfélagið lífi yfir vetrarmánuðina og ungt fólk myndar tengsl við bæinn til framtíðar. Framlag Seyðisfjarðar til menningar á Austurlandi og víðar er óumdeilt. Í bænum er ein þriggja menningarmiðstöðva fjórðungsins og að auki er í bænum öflugt safnastarf, kvikmyndahús, listahátíðir og myndlistarsýningar. Fjöbreytt menningarlíf hefur skapað sterk tengsl langt út fyrir Ísland og mun eiga stóran þátt áfram í mannlífi, hugmyndaauðgi og framtíðartækifærum staðarins.
Hér drögum við línuna
Aðdjúp höfn Seyðisfjarðar hefur í aldanna rás verið uppspretta uppbyggingar, tækifæra og samskipta við umheiminn. Við undirrituð, biðlum til stjórnvalda að þröngva ekki upp á okkur sjókvíaeldi, -gegn vilja meirihluta íbúa. Við óskum eftir samstarfi um mótun metnaðarfullrar atvinnustefnu fyrir samfélagið, þar sem hugsað er til framtíðar, samgöngurnar bættar og sögu okkar og vistkerfinu sýnd full virðing.Seyðfirðingar drógu línu í sjóinn 12. október 2024 og skilaboðin eru skýr: Hér er línan og yfir hana má ekki fara. (hlekkur hér: Við drögum línu í sjóinn, baráttumynd og fundur í Herðubreið
Um leið og við sem búum og/eða störfum á Seyðisfirði óskum landsmönnum öllum til hamingju með kjördag á morgun, biðlum við til allra þeirra, sem hafa um málið að segja, – að hlusta.
Gleðilegar kosningar!
Andrés Filippusson, bóndi
Anna Margrét Ólafsdóttir, myndlistarmaður
Aðalheiður Borgþórsdóttir, mamma LungA og fyrrum bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar
Apolline Fiara, myndlistarmaður
Arnar Klemensson, starfsmaður Vegagerðarinnar
Árni Geir Lárusson, tónlistarkennari Seyðisfirði
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, smiður og sveitarstjórnarfulltrúi
Avantí Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur
Bára Mjöll Jónsdóttir og jógakennari
Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, framkvæmdastýra Haföldunnar hostels
Björt Sigfinnsdóttir, verkefnisstjóri og frumkvöðull
Celia Harrison, forstöðukona Skaftfells
Daði Sigfússon, starfsmaður íþróttamiðstöðvar
Damian Luczak. hönnuður og smiður
Daníel Örn Gíslason, ljósmyndari
Davíð Kristinsson, sjúkraflutningamaður og hóteleigandi
Diljá Jónsdóttir, innritunarstjóri Smyrilline
Dóra Sigfúsdóttir, vinnuvélakona
Dusan Mercak, fjallaleiðsögumaður og ferðaþjónustuaðili
Dýri Jónsson, hóteleigandi
Einar Roth, byggingarverktaki
Elfa Hlín Pétursdóttir, forstöðukona tækniminjasafns Austurlands
Elfa Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Elín Ramette, kvikmyndagerðakona
Elísabet Maren Guðjónsdóttir leiðsögukona
Elvar Már Kjartansson, smiður
Emil Smári Guðjónsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar
Erna Helgadóttir, verslunareigandi
Erna Rut Rúnarsdóttir, sjúkraliði
Eva Jasmin, leikskólastarfsmaður
Freyr Andrésson, verkamaður
Garðar Bachman, kokkur og rekstraraðili Skaftfells bistro
Glenn Jackson, kafari
Guðjón Egilsson, kokkur
Guðlaug Sigfúsdóttir, öryrki
Guðlaugur Kristinn Óttarsson, Draugabani og Öreindafræðingur
Guðmundur Gunnar Gunnarsson, smiður
Guðrún Ásta Tryggvadóttir, kennari Seyðisfjarðarskóla
Guðrún Katrín Árnadóttir, fyrrum kennari
Guðrún Tinna Thorlacius, verslunareigandi Steinholt og co
Guðrún Veturliðadóttir, tónlistarkona og deildarstjóri listadeild
Hafþór Harðarson, ferðaþjónustueigandi
Halla Dröfn Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur Fossahlíð
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, myndlistarkona
Harry Caunter, verslunarstjóri
Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir, myndlistarmaður og verkefnastjóri Lunga skólans
Hildur Þórisdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Múlaþingi
Hilmar Guðjónsson – brautarstjóri LungA skólans
Hilmar Harðarson, ferðaþjónustueigandi
Hörður Hilmarsson, bifvélavirki
Hugrún Einarsdóttir, starfsmaður við aðhlynningu og nemi
Ioana Popovici, myndlistarmaður
Ingibjörg Grétarsdóttir, verkefnisstjóri
Ingvi örn Þorsteinsson, grafískur hönnuður og ferðaþjónustuaðili
Ísold Gná Sigríðar Ingvadóttir, móttökuritari og nemi
Ívar Andrésson, sjómaður
Óli Jóhannes Gunnþórsson, rafvirki
Jafet Bjarkar Björnsson, forritari
Jailka Milly Correia, þjónustustúlka
Jessica Auer, ljósmyndari
Jessica Carolina Stocks, fornleifafræðingur
Jóhann Grétar Einarsson, fyrrum stöðvarstjóri
Jóhann Jóhannsson, málari
Jóhann Sveinbjörnsson, fyrrum bæjargjaldkeri
Jón Halldór Guðmundsson, skrifstofumaður
Jón Hilmar, rafvirki
Jón Sigfinnsson, VFX listamaður
Jóna Björg Guðmundsdóttir
Juanjo Ivaldi Zaldívar, ljósmyndari
Justyna Materna, veitinga og ferðaþjónustueigandi
Kamilla Gylfadóttir, verkefnisstjóri hjá Skaftfelli myndlistarmiðstöð
Karl Svavarsson, póstfulltrúi
Katla Rut Pétursdóttir, frumkvöðull og listamaður
Kevan Rudd, smiður
Kolbeinn Agnarsson, eldri borgari
Kristín Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur
Kristinn Már jóhannesson, verkfræðingur
Lasse Hogenhoff, myndlistarmaður og kennari við Lunga skólann
Lilja Finnbogadóttir, sjúkraliði og sjúkraflutningakona
Lilja Ívarsdóttir, skrifstofukona
Linus Lohman, myndlistarmaður
Ljósbrá Guðmundsdóttir, Fyrrverandi verkakona og nú eldri borgari
Lukka S. Gissurardóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur
Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður hjá Vá félags um vernd fjarðar
Magnús Snæþór Stefánsson, verkamaður
Mariana Murcia, kennari við Lunga skólann
Mark Rohtmaa-Jackson, skólastjóri Lunga skólans
Martin Fabry, veitinga og ferðaþjónustueigandi
Miška Weber, starfsmaður Hótel Öldunnar
Monica Maria Rohtmaa-Jackson, starfsmaður vínbúðinni
Monika Fryčová, myndlistarkona
Paul Allen, eigandi Steinholt og co
Nelson Cartas, starfsmaður hjúkrunarheimilinu Fossahlíð
Nick Kaasschieter, bókunarstjóri
Oddur Roth, byggingarverktaki
Ólafía María Gísladóttir, lyfjatæknir og sjúkraliði
Paul Vrijlandt, veitingastjóri
Pétur Kristjáns fyrrum forstöðumaður tækniminjasafnsins
Pétur Jónsson, húsasmiðameistari
Ragnheiður Billa Árnadóttir, sjúkraliði
Rakel Snorradóttir, leikskólakennari
Rúnar Loftur Sveinsson, fyrrum starfsmaður síldarvinnslunnar
Sandra Mjöll Jónsdóttir, listakona
Sesselja Hlín Jónasardóttir, viðburðarstjóri
Sigfinnur Mikaelsson fyrrum framkvæmdastjóri
Sigfús Gunnarsson, fyrrum starfsmaður síldarvinnslunnar
Signý Jónsdóttir, kennari við Lunga skólann og frumkvöðull
Sigríður Heiðdal, starfsmaður grunnskólans á Seyðisfirði
Sigríður Rún Tryggvadóttir, guðfræðingur og prestur
Sigríður Viktoria Sigurðardóttir, sjúkraliði
Sigríður Þórstína Sigurðardóttir, húsmóðir
Sigrún Hólmgeirsdóttir, forstjóri
Sigrún Ingibjörg Jóhannsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu
Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og æðavarpsbóndi
Sigurbergur Sigurðsson, bóndi og verktaki
Sigurður Filippusson, bóndi Dvergasteini
Sigurður Gunnarsson, eigandi Lónsleiru
Sigurður Snæbjörn Stefánsson, fornleifafræðingur
Soffía Margrét Ívarsdóttir, bóndi Dvergasteini
Snorri Emilsson, bílstjóri
Sóley Rún Jónsdóttir, sjúkraliði
Sólrún Fiðbergs, förðunarfræðingur
Sólveig Sigurðardóttir, fyrrum bókavörður
Søren Bjørnshave Taul, stálsmiður
Stefán Smári Magnússon, líffæraþegi
Tess Rivorola, listakona
Vera Kapitóla Finnbogadóttir, húsmóðir
Vilborg Borgþórsdóttir, starfsmaður í grunnskóla
Zuhaitz Akizu, ströndin studio Seyðisfjörður
Zygmunt Antczak, smiður
Þorkell Helgason, smiður
Þóra Guðmundsdóttir, arkitekt og eigandi Haföldunnar
Þóra Ingvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Þórarinn Andrésson, listamaður
Þórbergur Torfason, sjómaður og eigandi Austursiglingar
Þorbjörg Alma Cecilsdóttir, sjúkraliðanemi
Þorgeir Sigurðsson bóndi og verktaki
Þórir Dan Friðriksson, fyrrum sjómaður
Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri
Þórir Freyr Höskuldsson, kennari við Lunga skólann
Þórunn Sigurðardóttir, landbúnaðarfræðingur, dýralæknir og bóndi Dvergasteini
Þrándur Roth, kennari við Lunga skólann