SFS lætur ekki að sér hæða og ræsir skrímsladeild sina. Hvert á þetta vanhæfi að vera? Að vilja vernda villta íslenska laxinn gegn því að hann skaðist varanlega af völdum sjókvíaeldis?
Hagsmunagæslufólk sjókvíaeldisfyrirtækjanna virðist ekki átta sig á að það er sjálft að staðfesta þá skaðsemi með svona smjörklípum.
Þetta er örþrifaráð fólks sem veit að það hefur vondan málstað að verja. Skýrsla Ríkisendurskoðunar leggur staðreyndir á borðið sem sjókvíaeldisfyrirtækin vilja ekki ræða efnislega.
Mbl. flytur eftirfarandi frétt upp úr Bæjarins Bezta:
Ísfirska fréttablaðið Bæjarins besta greinir frá því í frétt nú í morgun að samkvæmt lögbýlaskrá sé Guðmundur Björgvin eigandi að jörðinni Leysingjastöðum í Dalasýslu ásamt eiginkonu sinni, Helgu Jónu Benediktsdóttur. Hún er jafnframt formaður veiðifélags Laxár í Hvammssveit eftir því sem fram komi á vef Fiskistofu, en veiðifélagið sé aftur aðildarfélög að Landssambandi veiðifélaga.
Landsamband veiðifélaga hefur krafist þess horfið verði frá sjókvíaeldi að fullu, sem það telur að hafi mikil, neikvæð áhrif á hagsmuni veiðiréttarhafa og geti spillt villtum laxastofnum í ám.
Í frétt Bæjarins Besta er minnt á að Guðmundur Björgvin hafi áður komið að þessum málum á öðrum vettvangi. Hann var ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu 2004 þegar gefin var út auglýsing um bann við laxeldi í sjó á stærstum hluta strandlengju landsins og undirritaði auglýsinguna sem ráðuneytisstjóri.
Þá var hann um nokkurra ára skeið fulltrúi ríkisins í NASCO, North Atlantic Salmon Conservation Organization, samtökum um vernd laxastofnsins í Norður Atlantshafi, en Ísland sagði sig úr þeim eftir bankahrunið 2008.
Ekki verður séð af stjórnsýsluúttektinni að ríkisendurskoðandi hafi sagt sig frá gerð hennar vegna vanhæfis eða a.m.k. gert grein fyrir hagsmunum sínum.
Guðmundur Björgvin Helgason var kjörinn ríkisendurskoðandi á Alþingi liðið sumar, en hann kjörinntil sex ára í senn. Hann var settur ríkisendurskoðandi 1. febrúar 2022, en hóf störf hjá embættinu 2019 sem forstöðumaður Akureyrarstofu þess, ásamt því að vera sviðsstjóri tekjueftirlits og staðgengill ríkisendurskoðanda.