Ekkert lát er á hrikalegum dauða eldislaxa í sjókvíum við Ísland.

Samkvæmt upplýsingum sem voru að birtast á Mælaborði fiskeldis á vef Matvælastofnunar (MAST) drápust um 400.000 eldislaxar í janúar eða var fargað vegna þess að þeir áttu sér ekki lífsvon. Það jafngildir því að áttfaldur villti laxastofninn hefði drepist í þessum eina mánuði.

Þessi hrikaleg meðferð fyrirtækjanna á eldisdýrunum virðist njóta sérstrakrar blessunar Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra, því í drögum hennar að nýjum lögum um lagareldi er hvergi reynt að fá fyrirtækin til að bæta ráð sitt þegar kemur að þessum skelfilega dýravelferðarvanda.

Eðlilega hefur þetta vakið furðu. Þar á meðal innan raða dýralæknanna hjá VETAQ, sem er stærsta heilbrigðisþjónusta fyrir lagareldi á Íslandi en félagið er með áralanga reynslu innan heilbrigðis- og velferðarmála í fiskeldi. Í umsókn VETAQ um frumvarpsdrög Hönnu Katrínar segir:

„Það vekur undrun okkar að svo lítil áhersla sé sett á velferð og heilbrigði eldisstofns í drögum að frumvarpi um lög um fiskeldi.“

Áherslur Hönnu Katrínar koma fram á sama tíma og norsk stjórnvöld hafa lýst yfir því markmiði að koma dauða eldislaxa í tíu prósent á eldistíma þeirra í sjó. Hér vill Hanna Katrín leyfa fyrirtækjunum að halda áfram að láta um 40 prósent laxanna drepast.

Hafið þessi norsku markmið og orð dýralæknanna hjá VETAQ í huga þegar ráðherrann og annað sérhagsmunagæslufólk sjókvíeldisiðnaðarins reynir að halda því fram að þessi drög séu framfararskref.

Þau eru það ekki. Þau eru klæðskerasniðin að sérhagsmunum sjókvíeldisfyrirtækjanna.

Myndin sýnir flutning á eldislöxum sem drápust vegna vetrarsára.