„Niðurstaðan er afdráttarlaus: erfðablöndun verður svo útbreidd, og gerist svo hratt, að hreinræktaður villtur lax hverfur nánast alveg úr stofninum fáeinum árum eftir síðustu slysasleppingu — og skilar sér ekki aftur.“

Þessi hrollvekjandi sýn er afrakstur hermilíkans sem tölfræði- og verðbréfafyrirtækið Arev hefur unnið út frá annars vegar rannsóknum Hafrannsóknastofnunar, sem hafa staðfest þegar útbreidda erfðablöndun sleppilax úr sjókvíum við villta laxastofna, og hins vegar forsendum áhættumats erfðablöndunar frá sömu stofnun.

Líkan Arev sýnir að að sú erfðablöndun sem þegar hefur greinst í Hrútafjarðará, Staðará og fleiri ám með villtum laxi er tölfræðilega útilokuð nema langtum meira af eldislaxi hafi sloppið úr sjókvíum en sjókvíaeldisfyrirtækin hafa tilkynnt og er skráð hjá Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun.

Niðurstöður Arev passa fullkomlega við niðurstöður ICES, Alþjóða hafrannsóknaráðsins, sem eru á þá leið að erfðablöndun hefur þegar mælst í íslenskum ám við mun lægra framleiðslumagn af eldislaxi en áhættumat erfðablöndunar Hafrannsóknastofnunar sagði að væri óhætt að hafa í sjókvíum.

Er þetta mikill áfellisdómur yfir þeim forsendum sem Hafrannsóknastofnun hefur gefið sér við útreikninga á áhættumatinu.

Hér má kynna sér umsögn ICES. Óvenju harkalegur tónn er í þessari ráðgjöf, enda rík ástæða til

Í umfjöllun Mbl segir:

Verðbréfafyrirtækið Arev hefur unnið svokallaða IBSEM greiningu á nokkrum laxveiðiám, fyrir eigendur og hagsmunaaðila. Sú nýjasta tekur til Hrútafjarðarár og niðurstöðurnar eru vægast sagt sláandi. Í frétt sem Arev birti nýverið á heimasíðu sinni, arev.is segir. „Niðurstaðan er afdráttarlaus: erfðablöndun verður svo útbreidd, og gerist svo hratt, að hreinræktaður villtur lax hverfur nánast alveg úr stofninum fáeinum árum eftir síðustu slysasleppingu — og skilar sér ekki aftur það sem eftir er af 100 ára tímabili hermunarinnar.“ IBSEM stendur fyrir Individual-Based Atlantic Salmon Population Model.

Líkanið sem Arev notar gerir ráð fyrir að sjókvíaeldi, með tilheyrandi slysasleppingum standi yfir í fimmtíu ár og slíkt eldi hætti svo alveg. Líkanið hermir svo áfram eftir stofninum næstu fimmtíu árin án eldis. Þetta líkan er þróað í Noregi af þarlendum vísindamönnum. „Líkanið var stillt af og prófað á ánni Oselva í Noregi. Við Kalman Christer höfum svo staðfært það fyrir Ísland,“ sagði Jón Scheving Thorsteinsson, hjá Arev í samtali við Sporðaköst.

Litlir stofnar í meiri hættu
Ef við einföldum þetta þá er nokkuð ljóst að villti laxastofninn í Hrútafjarðará og hliðará hennar, Síká mun hverfa og i hans stað verða blendingar allsráðandi miðað við óbreytt ástand. Þar spilar meðal annars inn í að áin virðist eins konar segull fyrir strokufiska, eins og kom bersýnilega í ljós í stóru slysasleppingunni sumarið 2023. Stór þáttur í Hrútafjarðará er einnig sú staðreynd að hrygningarstofninn er tiltölulega lítill. Með vísindalegum fyrirvörum, í kringum fjögur hundruð fiskar. Um þetta tiltekna atriði segir í frétt Arev. „Þessi litla stofnstærð reynist afgerandi. Sama aðferðafræði og skilaði 15–30% hlutfalli blendinga í stærri stofnum Hofsár og Selár skilar mun meiri erfðablöndun í Hrútafjarðará: flækingslaxar og afkvæmi þeirra verða mun stærra hlutfall af stofni af þessari stærð.“

Hér er vitnað til samanburðar við þær systur í Vopnafirði þar sem Arev vann einmitt samskonar greiningu þar sem horft var til þróunar á hundrað árum.

„Vissulega verða villtu gengin áfram til staðar í laxastofninum en þetta verða allt blendingar. Þannig að hinn hreini villti stofn sem slíkur verður ekki lengur til staðar,“ segir Jón Scheving um niðurstöðuna sem líkanið gefur.

…Blendingar og eldislax 97% eftir 50 ár
Líkanið skiptir laxastofninum í Hrútafjarðará upp í fjóra erfðaflokka eftir tíðni villtra gena. Hreinn villtur lax, lítið erfðablandaður, mikið erfðablandaður og eldislax. „Á 50 ára eldistímabilinu hækkar hlutfall eldislaxa í hrygningarstofninum og nær hámarki í um 33%. Blendingum – að mestu í flokki mikillar erfðablöndunar – heldur áfram að fjölga, og við lok eldistímans (ár 50) eru blendingar og eldislax þegar orðnir um 97% af hrygningarstofninum. Sú þróun gengur ekki til baka eftir að slysasleppingar hætta: Samanlagt hlutfall blendinga og eldisfisks heldur áfram að hækka í 100% á ári 55 – aðeins fimm árum eftir síðustu slysasleppinguna – og helst þar út þau 45 ár sem eftir eru af hermuninni.“

Líkanið sem vísað er til hjá Arev er gríðarlega flókið og umfangsmikið. Þær myndir sem fylgja fréttinni er meðaltal þriggja keyrslna.

En hver er staðan núna? …

Í fyrra safnaði Hafrannsóknastofnun 1.839 sýnum úr fimmtíu ám. Tekin voru sýni úr flestum laxám á Vestfjörðum og í Breiðafirði, þar sem í um helmingi áa veiddust eldislaxar 2023.

„Helstu niðurstöður voru þær að tólf blendingar villts lax og eldislax greindust í sjö ám og tvö hrein eldisseiði, sem voru alsystkini, veiddust í tveimur ám í sama árkerfi. Eitt blendingsseiði fannst í fimm ám en í Brekkuá í Gilsfirði fundust fjögur sem líklega voru alsystkini. Í Hrútafjarðará fundust þrír blendingar þar sem tvö þeirra voru alsystkini en þriðja óskylt. Fiskarnir úr Hrútafjarðará voru ýmist alsystkini eða hálfsystkini blendinga sem veiddust 2024 í sama árkerfi. Líklegra má telja að gögnin sýni hrygningu tveggja en ekki þriggja eldislaxa í árkerfi Hrútafjarðarár 2023.“

Sýnataka í fyrra og niðurstöður rannsókna á þeim bendir til þess að ummerki um hrygningu níu eldislaxa hafi fundist frá árinu 2023 þegar stóra strokið var. Þegar horft er til ársins 2024 líka hækkar þessi tala í fjórtán. Hluti sýna frá 2024 er af Vesturlandi og Norðvesturlandi. Um þá tveggja ára niðurstöðu segir í vöktunarskýrslu Hafró.

„Í gögnunum greindust 34 blendingar og tvö eldisseiði. Ef litið er til systkinatengsla sýna má áætla að gögnin endurspegli hrygningu 14 eldislaxa árið 2023 á rannsóknarsvæðinu í 13 ám.“ Svo segir og það styður þá kenningu að einungis sé vitað um hluta af því stroki eða sleppingum sem eiga sér stað.

„Það er mestur fjöldi hrygnandi eldislaxa sem gögn ná til en samt sem áður litlu meiri en árið 2017 þar sem hrygning 10 eldislaxa greindist, í ári þegar aðeins sjö strokulaxar bárust Hafrannsóknastofnun til greiningar og sýnataka var takmarkaðri.“

…Í vöktunarskýrslu Hafró eru rifjuð upp markmið laga um fiskeldi nr. 71/2008 með síðari breytingum. „Markmið laga þessara er að skapa skilyrði til uppbyggingar fiskeldis og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu, stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytjastofna. Skal í því skyni leitast við að tryggja gæði framleiðslunnar, koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum og lífríki þeirra og tryggja hagsmuni þeirra sem nýta slíka stofna. Til að ná því markmiði skal tryggt að eldisbúnaður og framkvæmd í sjókvíaeldi standist ströngustu staðla sem gerðir eru fyrir fiskeldismannvirki í sjó. Við framkvæmd laganna skal þess ávallt gætt að sem minnst röskun verði á vistkerfi villtra fiskstofna og að sjálfbærri nýtingu þeirra sé ekki stefnt í hættu.“

Svo geta menn spurt hvernig til hafi tekist við að ná þessu markmiði laganna.

Tölurnar eru líka sláandi. Hafró tekur þær saman í vöktunarskýrslunni.

„Framleiðsla á laxi í sjókvíum nam tæpum 55 þúsund tonnum árið 2025 og hefur aldrei verið meiri (Matvælastofnun 2026). Sama ár veiddust aðeins 34.186 laxar í stangveiði en samkvæmt veiðiskráningum frá 1974 veiðast hér að meðaltali rúmlega 46 þúsund villtir laxar ár hvert (Guðmunda B. Þórðardóttir og Guðni Guðbergsson 2026). Samkvæmt áhættugreiningu á áhrifaþáttum á laxastofna í Noregi, sem tengjast athöfnum manna, hafa tveir þættir laxeldis verið taldir sérstaklega mikilvægir; annars vegar laxalús sem eykur afföll laxa og sjóbirtings í sjó og hins vegar erfðablöndun við strokulaxa úr eldi sem einnig getur dregið úr viðkomu stofna (Vitenskapelig råd for lakseforvaltning 2010; 2025). Alþjóða laxaverndunarstofnunin (NASCO), sem Ísland er aðili að, hefur lagt það til við aðildarlönd sín að útbúa áhættugreiningu svipaða þeirri norsku. Sú vinna er hafin hér á landi.

19 milljónir á móti 78 þúsund
Laxeldi á Íslandi byggir á kynbættum laxi af norskum stofni sem er erfðafræðilega frábrugðinn villtum íslenskum laxastofnum. Undanfarin ár hafa árlega verið sett út um 13 milljónir laxaseiða í sjókvíar við Ísland, en rúmlega 19 milljónir árið 2025 (Matvælastofnun 2025), á meðan ganga villtra laxa í ár á Íslandi hefur að meðaltali verið um 78.000 laxar frá 1971 (Guðmunda B. Þórðardóttir og Guðni Guðbergsson 2024; ICES 2025). Því er mikill munur á stærðarhlutföllum sjókvíaeldis og villtra stofna.“

…