Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Seyðfirðingar standa saman gegn sjókvíaeldi

Seyðfirðingar standa saman gegn sjókvíaeldi

Ólafía María er borinn og barnfæddur Seyðfirðingur og segist hafa séð alltof mörg ævintýrafyrirtæki hafa reynt að græða á firðinum og skilja íbúana eftir í rústum. Hún segir því skýrt NEI við áformum um sjókvíaeldi í Seyðisfirði. 📍 Mótmæli: Austurvöllur +...