Íslenski náttúruverndarsjóðurinn mun lika kæra ákvörðun lögreglustjóraembættisins á Vestfjörðum enda er hún óskiljanleg.

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur ekki skýrt hvað hann telur að hafi valdið því að eldislaxar sluppu úr sjókví Arctic Fish en samkvæmt orðum hans þegar hann ákvað að fella niður rannsókn málsins virðist hann hvorki telja um að kenna athöfnum né athafnaleysi fyrirtækisins.
Liggur þó fyrir að:

1) netapoki sjókvíarinnar rofnaði því starfsmenn Arctic Fish skildu eftir i henni fóðurdreifingartæki.

2) Arctic Fish sinnti ekki neðansjávareftirliti með sjókvínni í 95 daga.

3) ekki var hirt um að gera við ljósastýringarbúnaðað sem var bilaður í marga mánuði.

Þessu máli er ekki lokið.

Í frétt Vísis er fjallað um ákvörðun Landssambands veiðifélaga að kæra ákvörðunina:

Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, segir ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn vera gríðarleg vonbrigði.

„Það er alveg ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli er algjört. Af ákvörðuninni að dæma er erfitt að sjá hvort er meira ráðandi að lögreglustjórinn sé almennt vanhæfur til að fjalla um svona mál vegna skorts á þekkingu á lögum og lögskýringum eða hvort hann sé sérstaklega vanhæfur í þessu máli vegna aðstæðna og hvort tveggja virðist eiga við þegar maður les ákvörðunina,“ segir Gunnar. …

Að sögn Gunnars er stærsti þátturinn vankunnátta og misskilningur á túlkun refsiheimildar 22. gr. laga um fiskeldi. „Þar sem meginreglu um saknæmi er ruglað saman og síðan muninum á almennum refsimörkum og sérrefsimörkum. Það er auðvitað mjög alvarlegt ef rannsakandi býr ekki yfir slíkri þekkingu á lögum og lögskýringu.“

Gunnar segir ljóst að lög hafi verið brotin. „Brotið hefur verið gegn lögum um fiskeldi og ef ekki verður refsað fyrir þetta stærsta umhverfisslys sem orðið hefur hér á landi þá er alveg ljóst að lögin ná ekki markmiði sínu,“ segir hann. …

Gunnar segir ákvörðunina ekki hafa komið neitt sérstaklega að óvart vegna stöðunnar sem uppi er á Vestfjörðum. „Síðan hefur það sýnt sig líka erlendis að samfélög sem lenda undir hælnum á svona stórum fyrirtækjum verða ð nokkru leyti lömuð þar sem embættismenn og íbúar samfélaganna þora ekki að stíga upp á móti fyrirtækjunum og stjórn þeirra. Í þessu tilfelli hafa stjórnendur líka mjög mikið pólitískt afl á bakvið sig og slíkt getur náttúrulega valdið vanhæfi,“ segir Gunnar jafnframt.