ÍSLENSKI NÁTTÚRUVERNDARSJÓÐURINN
Ísland er eitt síðasta vígi villta Norður-Atlandshafslaxins.
Laxeldi í opnum sjókvíum ógnar öllum villtum laxastofnum
á Íslandi.
Mynd: Einar Falur Ingólfsson
Kynnið ykkur málið
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Fréttir
Óeðlilegt að fiskeldisfyrirtæki þurfi ekki starfsleyfi frá Umhverfisstofnun
Í nýjum frumvarpsdrögum um fiskeldislög er ekki gert ráð fyrir að fiskeldisfyritæki þurfi starfsleyfi frá Umhverfisstofnun eins og hefur verið skylda hingað til. Þetta hlýtur að verða lagað. Fiskeldi er mengandi starfssemi, það er óumdeilt, og á að sjálfsögðu að fara...
Eftirlit með starfsemi sjókvíaeldis er skrípaleikur
Þorkell Daníel Eiríksson, fiskeldisfræðingur og bóndi varar eindregið við áætlunum um aukið fiskeldi í sjókvíum við Ísland. Í viðtali við Fréttablaðið segir Þorkell Daníel m.a.: „Fyrirtækin sjálf eiga að bera ábyrgð á að tilkynna slysasleppingar sem er náttúrulega...
Alvarlegar athugasemdir við drög að breytingum á lögum um fiskeldi
Full ástæða er til að skoða innrás norskra eldisfyrirtækja hér á landi með nánast ókeypis afnotum af íslensku hafsvæði. "Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarfélagið Laxinn lifi ásamt tíu veiðifélög og veiðiréttarhafar hafa gert athugasemdir við drög að...
Einhverjar spurningar?
Hafðu samband
Skilmálar og persónuvernd
Umhverfissjóðurinn The Icelandic Wildlife er ekki rekinn í ágóðaskyni ( non – profit ).
Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.
Íslenski náttúruverndarsjóðurinn er félag í:






