ÍSLENSKI NÁTTÚRUVERNDARSJÓÐURINN
Ísland er eitt síðasta vígi villta Norður-Atlandshafslaxins.
Laxeldi í opnum sjókvíum ógnar öllum villtum laxastofnum
á Íslandi.
Mynd: Einar Falur Ingólfsson
Kynnið ykkur málið
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Fréttir
Erfðagreining staðfestir að eldislaxar hafa veiðst í fjölda laxveiðiáa
NÝ FRÉTT Erfðagreining hefur staðfest að eldislaxar hafa veiðst í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará. Meirihlutinn af þessum fiskum kemur frá Daníel Jakobssyni og félögum hjá Arctic Fish sem hafa ítrekað misst...
Bakteríusýking sem veldur sumarsárum í eldislaxi
Enn ein hryllingsvíddin var að bætast við ömurlega vist eldislaxa í sjókvíum: Baktería sem veldur sumarsárum einsog sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni. Norska dýralækningastofnunin hefur verulegar áhyggjar af hraðvaxandi útbreiðslu þessarar hættulegu bakteríu með...
Merkilegt hvernig kaupin gerast á þessari eyri: Laxaforstjórar verða vellauðigir á taprekstri
Á þessum lista er forstjóri Arnarlax, Björn Hembre, með 105 milljónir króna í laun á síðasta ári, eða um níu milljónir á mánuði við að menga íslenska firði og eyðileggja lífríkið. Arnarlax er rekið með bullandi tapi, neitar að borga hafnargjöld eftir verðskrá...
Einhverjar spurningar?
Hafðu samband
Skilmálar og persónuvernd
Umhverfissjóðurinn The Icelandic Wildlife er ekki rekinn í ágóðaskyni ( non – profit ).
Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.
Íslenski náttúruverndarsjóðurinn er félag í:






