Fréttir
Færsla Jóhannesar Sturlaugssonar á Facebook um eldislaxa sem veiddust í Haukadalsá
Slæmt er það. Báðir sjókvíaeldislaxarnir sem ég (Jóhannes Sturlaugsson) veiddi í Haukadalsá nóttina 14. ágúst síðast liðinn reyndust hafa sloppið úr kví í Dýrafirði . Sá stærri þeirra var 88,0 cm langur og 7,75 kg þungur og mynd af honum fylgir þessari færslu...
Arctic Fish tapaði yfir 100 milljónum á hverjum mánuði á fyrri helmingi ársins
Arctic Fish er ekki aðeins að glíma við göt á netapokum í sjókvíum sínum heldur er risagat líka í bókhaldi fyrirtækisins sem tapaði 637 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins. Staðan er svo slæm að félagið er tilneytt til að auka hlutafé um fimm milljarða króna til...
„Öndum rólega – á meðan húsið brennur“ – Magnús Magnússon skrifar
Við mælum eindregið með þessari grein Magnúsar Magnússonar formanns Veiðifélags Miðfirðinga. Greinin birtist á vef Vísis: Nokkuð erfitt var að lesa grein framkvæmdastjóra SFS hér á Vísi í gær sem sett var fram af talsverðu yfirlæti. Þar var bændum og veiðiréttarhöfum...
Myndband af vettvangi í Hrútafjarðará
Norsku froskkafararnir fjarlægðu tvo eldislaxa og sáu fleiri í dag í Hrútafjarðará. Þeir náðu aðeins að skanna lítinn hluta árinnar. Það er 100 prósent öruggt að miklu fleiri strokulaxar eru í ánni. Stóra spurningin er hvaða sjókvíaeldisfyrirtæki lét(u) þá sleppa frá...
Stjórnvöld skila auðu andspænis innrás norskra eldislaxa í laxveiðiár landsins
„Stjórnvöld hafa skilað gjörsamlega auðu og nú verður hver og einn að grípa til aðgerða við sína á. Þetta er innrás, ekkert nema innrás og við áskiljum okkur þann rétt að verja ána á allan þann hátt sem við getum.“ Þetta segir Kristján Þorbjörnsson, formaður...
Myndir af vettvangi við Haukadalsá frá Ingólfi Ásgeirssyni, stofnanda IWF
Af vettvangi við Haukadalsá í nótt, frá Ingólfi Ásgeirssyni stofnanda Íslenska náttúruverndarsjóðsins: „Klukkan er að ganga 5 að morgni hér við Hauku. Skelfilegir hlutir i gangi hér. Búnir að ná 3 eldislöxum i einum hyl. Náðum ekki nærri öllum. Eru klárlega á annan...
Myndband af vettvangi í Haukadalsá
Hér má sjá norska froskkafara draga fyrsta eldislaxinn sem þeir náðu úr Haukadalsá rétt í þessu. Fleiri eru komnir á land. Þetta er fjórum kílómetrum ofar í ánni en þeir eldislaxar sem veiddust í síðustu viku. Það var kominn litur á fiskinn þannig að ljóst er að hann...
Eldislax veiddist í Vatnsdalsá
Þessi eldislax veiddist í Hnausastreng í Vatnsdalsá síðdegis í dag. Fyrir þau sem eru ekki staðkunnug þá rennur Vatnsdalsá til sjávar í Húnaflóa á Norðvesturlandi, hinum megin við Vestfjarðarkjálkann frá Haukadalsá við Breiðafjörð á Vesturlandi þar sem eldislaxarnir...
„Framtíð villta laxins hangir á bláþræði“ – Elvar Örn Friðriksson skrifar
„Í Noregi eru um 70% laxastofna erfðablandaðir og ástandið þar orðið svo slæmt að árið 2024 þurfti að loka 33 af þekktustu laxveiðiám Noregs. Einfaldlega vegna þess að það var nánast enginn villtur lax að koma til baka í árnar. Vísindasamfélagið þar er á einu máli að...
Lokuð kerfi eru framtíð sjókvíaeldis: Ingólfur Ásgeirsson í viðtali við mbl
Lausnin fyrir þá sem vilja stunda laxeldi í sjó er til: „Það eru lokuð kerfi í sjó.“ Ingólfur Ásgeirsson, stofnandi Íslenska náttúruverndarsjóðsins, ræðir í Dagmálum á MBL í dag af hverju opið netapokaeldi getur aldrei gengið í sjó án þess að valda meiriháttar skaða á...
Veiðifélög grípa til örþrifaráða til að verja laxveiðiár í kjölfar nýjasta sleppislyssins
Veiðifélag Miðfjarðarár hefur ráðist í stórtækar aðgerðir til að verja meginvatnasvæði árinnar fyrir áhlaupi eldislaxa með tilheyrandi sjúkdómaáhættu og erfðablöndun. Bændur og aðrir eigendur jarða, þar sem ár með laxi renna um, eru nú tilneyddir í neyðaraðgerðir til...
Afleit staða í Haukadalsá: Fleiri eldislaxar veiðst en árið 2023
Afleit staða. Landssamband veiðifélaga deildi þessari færslu á Facebook: Þegar hafa fundist fleiri eldislaxar í Haukadalsá en árið 2023. Ákveðins misskilnings virðist gæta í umræðunni um eldislaxana í Haukadalsá. Vissulega reyndist stór hluti þeirra fiska sem fulltrúi...











