Fréttir
Niðurstaða nýrrar franskrar bókar um sjókvíaeldisiðnaðinn: „Vistfræðilegur glæpur gegn mannkyninu“
Sjókvíaeldi á laxi er ,,vistfræðilegur glæpur gegn mannkyninu" er niðurstaða bókar sem var að koma út í Frakklandi. Höfundurinn beinir kastljósinu sérstaklega að Skotlandi en þaðan kemur um 60 prósent af eldislaxi sem seldur er í Frakklandi. Iðnaðurinn fær falleinkun...
Stór laxadauði hjá Mowi vegna þörungablóma: 189.000 laxar drápust í kvíum félagsins í Noregi
Norski sjókvíaeldisrisinn, MOWI, sem er móðurfélag Arctic Fish á Vestfjörðum, stundar dýraníð- og matarsóun á iðnaðarskala hvort sem það er hér á Íslandi eða annars staðar. Á örfáum dögum hafa 189.000 eldislaxar kafnað vegna þörungarblóma í sjókvíum fyrirtækisins í...
Hvað gerðist í innviðaráðuneytinu?
Í gær rann út frestur til að senda inn umsögn um drög innviðaráðuneytisins að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjölmiðla. Þar var meðal annars að finna fráleita tillögu um að færa innviðaráðherra heimild til...
Laxeldi er ekki „ung atvinnugrein“ hér á landi: Það hefur áður verið reynt með hörmulegum árangri
Í nýrri samantekt endurskoðanda- og fyrirtækjaráðgjafarfyrirtækisins PWC um stöðu fiskeldis á Íslandi er klifað á því að laxeldi sé „ung atvinnugrein“ hér á landi. Afar sérstakt er, svo það sé kurteisislega orðað, að sjá þessa lýsingu í greiningu á laxeldi frá...
Stórt sleppislys hjá MOWI í Skotlandi: Akkeristengingar losnuðu í fyrstu lægð haustsins
Um síðustu helgi sluppu um 75.000 eldislaxar úr sjókví MOWI við Skotland þegar fyrsta lægð haustsins gekk yfir landið. Tvær Íslandstengingar eru í þessari frétt. Annars vegar er MOWI móðurfélag Arctic Fish sem hefur ítrekað misst frá sér eldislax úr sjókvíum sínum á...
Stofnanir sem eiga að hafa eftirlit með sjókvíaeldi njóta þverrandi trausts veiðimanna
„Hvar er fræðslan? Hvar er upplýsingaflæðið. Af hverju er ekki búið að setja saman gagnagrunn og upplýsa þá sem í þessu standa – sem og veiðimenn. Hvað er áætlað að mikið af fiski hafi strokið ? Hvað voru fiskar stórir sem tengjast stroki? Getur verið að það henti...
Stór laxadauði í Noregi hjá móðurfélagi Kaldvíkur: 50.000 laxar drápust þegar meðhöndla átti þá vegna sýkingar
Norska sjókvíaeldisfyrirtækið Måsøval fékk háa sekt á dögunum fyrir slæma meðferð á eldisdýrum sínum. Er fyrirtækið þar í sömu ömurlegu stöðu og dótturfélag þess, Kaldvík sem var sektað fyrir brot á dýravelferðarlögum fyrr á árinu og annað dýravelferðarmál kært til...
Sömu lög fyrir alla atvinnustarfsemi: Áskorun til forseta Alþingis
Áskorunin hér fyrir neðan fór til forseta Alþingis í morgun. Að henni stendur breiðfylking náttúruverndarsamtaka landsins, frá yngsta baráttufólkinu til þess elsta. Tilefnið er fyrirhuguð endurskoðun á lögum um lagareldi. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafa boðað að...
Minnst 3,5 milljón eldislaxar hafa drepist við Íslandsstrendur það sem af er árinu
Á fyrstu átta mánuðum þessa árs hafa rúmlega 3,5 milljónir eldislaxa drepist í sjókvíum við Ísland. Þetta kemur fram í tölum sem voru að birtast á Mælaborði fiskeldis á vef Matvælastofnunar (MAST). Þessi gríðarlegi fjöldi er álíka mikið og drapst af eldislaxi allt...
MOWI selur sjálfdauðan fisk úr norskum kvíum á neytendamarkað
Í glænýrri frétt á vefsvæði norska ríkissjóvarpsins, NRK, er sýnt hvernig flokkunarkerfi um borð í þjónustubátum norska sjókvíaeldisrisans MOWI raðar sjálfdauðum laxi sem soginn er upp úr kvíunum í flokk með eldislaxi sem fer á neytendamarkað. MOWI er móðurfélag...
„Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi“ – Jón Kaldal skrifar
Í drögum Hafrannsóknastofnunar að nýju áhættumati erfðablöndunar koma fram þrjár gerólíkar sviðsmyndir um hver þróunin verður í sjókvíaeldi á laxi við Ísland á næstu árum. Þar á meðal ein sem markar endalok áætlana um að opið sjókvíaeldi af iðnaðarskala verði leyft...
Eiturvopnahernaður sjókvíaeldisins gegn íslenskri náttúru
Lyfja- og efnavopnahernaður sjókvíaeldisfyrirtækjanna gegn náttúru Íslands heldur linnulítið áfram. Gera má ráð fyrir að um 10 milljónir eldislaxa séu í þessum 64 sjókvíum sem Mbl segir frá að gefið hafi verið lyfjablandað fóður alla daga í viku til að reyna að losa...











